Veðurguðirnir ákváðu að heiðra okkur með yndislegri veðurblíðu í tilefni dagsins.
Innilega til hamingju með daginn kæru sjómenn nær og fjær. Þessir flottu fulltrúar settu krans á minnismerki sjómanna í dag fyrir hönd björgunarsveitarinnar.
Veðurguðirnir ákváðu að heiðra okkur með yndislegri veðurblíðu í tilefni dagsins.
0 Comments
Björgunarsveitin Sigurvon biðlar til bæjarbúa að fara varlega í óveðrinu, en Reykjanesbrautin verður lokað frá klukkan 12 til 17 í dag. Björgunarsveitir á Suðurnesjum verða á vaktinni í dag en við minnum bæjarbúa á að hringja í 112 ef aðstoðar okkar er þörf.
... að um það bil 2.200 manns hefur verið bjargað úr strönduðum skipum hér við land með svokölluðum fluglínutækjum. Langflestar sveitir við ströndina hafa slíkan búnað og æfa reglulega meðferð hans. Búnaðurinn samanstendur af skotflaug sem dregur á eftir sér línu út í hið strandaða skip, tildráttartaug, líflínu, björgunarstól og þrífæti. Leitarhundurinn okkar, Orka, tók þátt í snjóflóðaútkalli í fyrsta sinn í gær. Orka er búin að vera á útkallslista hjá Sigurvon frá árinu 2011 og hefur tekið þátt í stærri og minni leitaraðgerðum síðan þá, en þetta var í fyrsta sinn sem hún hefur verið kölluð út vegna snjóflóðs. Þrír menn lentu í flóðinu og komust tveir þeirra út að sjálfsdáðum. Því miður lést sá þriðji sem leitað var að og vottum við fjölskyldu hans og aðstandendum innilegrar samúðar. Frábær mæting okkar fólks!
Björgunarsveitin Sigurvon telst seint til stærri björgunarsveita landsins. En við höfum sýnt það margsýnis að margur sé knár, þó hann sé smár. Enn og aftur sannaðist það í síðasta útkalli (leitin að Birnu) þar sem 37,8% skráðra meðlima í sveitinni mættu í útkallið. Tveir leitarhópar voru í aðgerðinni á vegum Sigurvonar með 6 félögum hvor. Sigurvon átti 3 aðila í svæðisstjórn yfir það heila og tvo í hússtjórn. Í það heila voru það því 17 manns frá okkar sveit sem tóku þátt í leitinni, sem verður að þykja ansi gott fyrir sveit sem telur ekki nema 45 manns á skrá. Einstaklingar sem leitað er að eru oft lengi í hugum björgunarsveitarfólksins enda geta sum útköll tekið alveg gríðarlega á andlega. Sigurvon leitaði eftir aðstoð í sálrænum stuðning frá fagaðila og hefur öllum meðlimum verið boðið að hitta fagaðila eftir þetta erfiða útkall. Við eru þakklát fyrir allan þann stuðning sem við höfum fundið fyrir frá almenningi og fyrirtækjum.
Björgunarsveitin Sigurvon vottar fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur okkar dýpstu samúð. Ég er starfsmaður Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Mig langar að þakka fyrirtækinu mínu fyrir þann skilning að með einu skilaboði þarf ég að vera farinn. Ég er einnig björgunarsveitarmaður Brimrúnar af svæði 13 og Sigurvonar af svæði 2. Föstudaginn síðasta var ég kallaður suður af lögreglu og var ég kominn kl. 04:00 laugardagsmorgun. Leit byrjaði kl. 09:00. Falleg 20 ára gömul stúlka hafði ekki skilað sér heim í viku. Rúmlega 600 björgunarsveitarmenn af öllu landinu tóku þátt. Þessi aðgerð varð sú viðfangsmesta sem Landsbjörg hefur staðið fyrir. Notast var við tvær þyrlur, tvær flugvélar, dróna, hunda, bíla og fjórhjól. Eftir erfiða tveggja daga leit í skítugu hrauninu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkur tókst okkur það sem að við komum fyrir. Við fundum Birnu. Öll svæði urðu send heim nema 1-3. Ég þurfti að halda áfram leit, í kolsvarta myrkri. Ég kom heim seint um kvöldið, og það fyrsta sem beið mín var heitt faðmlag frá mömmu. Ég grét í fanginu á henni. Ég grét yfir þeirri staðreynd að ég var sendur á það svæði þar sem vondur maður losaði sig endanlega við Birnu, í von um vísbendingar hvar og hvort möguleg morðvopn hafi verið til staðar. Þetta tók á andlega sem líkamlega - þó meira andlega. Birna sýndi okkur það, að þegar þjóðin verður fyrir áfalli, verðum við að standa saman. Við erum fjölskylda. Birna, þú áttir þetta ekki skilið. Þú áttir það ekki skilið að vera rænd framtíðinni. Þú áttir ekki skilið að fá aldrei að sjá foreldra þína aftur. Fyrirgefðu. Mig langar hér með til þess að votta fjölskyldu þinni og vinum mína dýpstu samúð. Í von um bjartari daga. - Viktor, björgunarsveitarmaður. Eins og fram kom á blaðamannafundi rétt í þessu er Birna að öllum líkindum fundin.
Því miður fannst hún ekki á lífi. Við vottum aðstandendum hennar innilegrar samúðar. Magnaður hópur var við leit í gær frá björgunarsveitum allsstaðar af landinu. Blautt var í veðri og reyndi mikið á þol og þolinmæði leitarmanna. Í dag verður farið yfir fleiri svæði og leit heldur áfram. Hér koma myndir af þeim talstöðvum sem voru í gangi á hverjum tíma fyrir sig. Tveir leitarhópar voru í aðgerðinni á vegum Sigurvonar með 4 félögum hvor. Sigurvon átti 3 aðila í svæðisstjórn yfir það heila og tvo í hússtjórn. Í það heila voru það því 13 manns frá okkar sveit sem tóku þátt í leitinni, sem verður að þykja ansi gott fyrir sveit sem telur ekki nema 45 manns á skrá. 29% skráðra sveitarmeðlima mætti í útkallið. Þetta er það sem við köllum samstöðu í lagi. Slysavarnarfélagið Landsbjörg er ótrúlega magnað batterí. Takk allir!
|
sigurvonBjörgunarsveit síðan 1928 fréttasafn
January 2018
flokkar
All
|