.. svipmyndir frá aðgerð
Fjölveiðiskipið Ósk KE-5 fékk net í skrúfuna á veiðum á vestur af Sandgerði í gærmorgun, en beiðni um aðstoð barst klukkan 05°°. Hannes Hafstein var sendur á staðinn, en Ósk var þá 28 sjómílur frá landi.
Vont var í sjóinn til að kafa og skera netið í burtu, þannig að ákveðið var að draga Ósk nær landi eða um 12 mílur og þar var netið þá skorið í burtu.
Meðfylgjandi myndir tók Veigar Þór Gissurarsson hjá Sigurvon þegar Gunnar kafari var við störf.
Myndir: Veigar Þór Gissurarsson | Texti: www.245.is