Elsta sjóbjörgunarsveit á Íslandi
Björgunarsveitin Sigurvon
  • Forsíða
  • Sigurvon
    • Flokkar >
      • Tækjaflokkur
      • Sjóflokkur
      • Landflokkur
    • Um sveitina >
      • Stjórn
      • Félagatal
      • Svæðisstjórn
    • Dagbók >
      • Útköll
    • Unglingadeildin Von >
      • Umsjónarmenn
      • Meðlimir
      • Myndir
    • Myndir
    • Tenglar
  • Fréttir

Slysavarnarfélagið 90 ára

29/1/2018

0 Comments

 
​Í dag 29. janúar verða 90 ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs sem síðar var sameinað undir nafnið Slysavarnarfélagið Landsbjörg árið 1999 eins og við þekkjum það í dag. Síðar sama ár eða 28 Júní 1928 var Slysavarnardeildin Sigurvon stofnuð og er hún fyrsta slysavarnardeildin sem stofnuð var innan Slysavarnafélags Íslands. Slysavarnadeildina Sigurvon þekkjum við í dag sem Björgunarsveitina Sigurvon sem starfað hefur við leit og björgun bæði til sjó og lands allt frá stofnun.
Í tilefni dagsins munu meðlimir Björgunarsveitinar Sigurvon skjóta upp hvítu svifblysi klukkan 21:00 í kvöld. En klukkan 21.00 verður hvítu svifblysi skotið upp á sama tíma um allt land.
Picture
0 Comments

Flugeldasalan hefst á morgun.

27/12/2017

0 Comments

 
Eins og flestir vita er björgunarsveitin byggð á hópi sjálfboðaliða sem eru stöðugt á vaktinni allan ársins hring. En til þess að geta sinnt útköllum þurfum við að geta staðið straum af tækja og búnaðarkaupum, svosem farartækjum, fjarskiptatækjum og öryggisbúnaði sem dæmi. Okkar strærsta fjáröflun yfir árið er flugeldasalan, en þar leggja meðlimir sveitarinnar nótt við dag til þess að setja hana upp og svo manna hana dag og nótt yfir opnunardagana. 
Sigurvon er lítil sveit og það munar um hvern einstakling sem kemur til okkar að versla flugelda. Verslum í heimabyggð og styðjum við sveitina okkar.
​Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum fyrir áramótin!
Picture
0 Comments

Leit á Jóladag.

25/12/2017

0 Comments

 
Meðlimir Sigurvon létu ekki sitt eftir liggja í leitinni að kvöldi jóladags, en 12 meðlimir sveitarinnar tóku þátt í leitinni á jóladag. Björgunarsveitin Sigurvon á marga velunnara sem styrkt hafa starf sveitarinnar í gegnum árin og eigum við þeim mikið að þakka. En okkur langar að þessu sinni að koma á framfæri þökkum til fjölskyldna björgunarsveitarmanna fyrir ómetanlegan stuðning.
Picture
0 Comments

Óveður 5.nóvember 2017

5/11/2017

0 Comments

 
0 Comments

Neyðarkall 2017

3/11/2017

0 Comments

 
Kæru bæjarbúar
Björgunarsveitin Sigurvon fòr af stađ međ sölu á neyđarkallinum ì gær en ekki náðist að klára allar göturnar og munum við því halda áfram ì kvöld.
Bæjarbúar hafa tekið gríðarlega vel á móti meðlimum sveitarinnar og langar okkur að koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa.
0 Comments

Fjarskiptanámskeið

27/10/2017

0 Comments

 
Í kvöld fór fram námskeiðið Fjarskipti 1 hér í Austurgarði. 
Góð mæting var á námskeiðið eða 14 nemendur! Þar af 6 frá Sigurvon og 8 frá Þorbirni í Grindavík. 
Fjarskipti 1 er eitt af grunnnámskeiðum Björgunarskólans sem falla undir flokkinn Björgunarmaður 1. Þar læra nemendur grunninn í talstöðvasamskiptum með VHF og Tetra ásamt því að þau kynnast lauslega öðrum fjarskiptalausnum.
Leiðbeinandi var Dóra úr Sigurvon.
Menntun björgunarmanna skiptir miklu máli svo þeir séu sem best undirbúnir þegar kemur að því að fara í útköll.
0 Comments

Aðalfundur Sigurvonar

18/10/2017

0 Comments

 
Í kvöld fór fram aðalfundur Björgunarsveitarinnar Sigurvon. Töluverðar breytingar urðu á stjórn og skipar hún eftirtalin:
Alma Guðnadóttir formaður
Bragi Snær Ragnarsson varaformaður
Fannar Vilhjálmsson gjaldkeri
Hulda Lind Stefánsdóttir ritari
Ragnar Sæbjörn Ingason meðstjórnandi
Jakob Gunnarsson varamaður
Sverrir Kristinsson varamaður

Jónína Hansen, Halldór Jón Grétarssom og Sigurbjörn Grétarsson hættu í stjórn og þökkum við þeim kærlega fyrir síðsta árið.
0 Comments

Leitarhundaúttekt

7/10/2017

0 Comments

 
Dóra og Orka fóru á úttekt í víðavangsleit um helgina.
Picture
Picture
0 Comments

Aðalfundarboð

26/9/2017

0 Comments

 
Stjórn Sigurvonar boðar til aðalfundar Björgunarsveitarinnar Sigurvon þriðjudaginn 17. október næstkomandi í húsi sveitarinnar Austurgarði 4-6.
Fundur hefst kl.20:00
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Skýrsla stjórnar.
- Önnur mál.
-Framtíð sveitarinnar.
VIð hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Stjórn Sigurvon
0 Comments

SANDGERÐISDAGAR

26/8/2017

0 Comments

 
Það hefur verið nóg að gera hjá meðlimum Sigurvon í dag. Fyrsti hópur mætti snemma í morgun til að halda utan um dorgveiðikeppnina, annar tók að sèr gæslu á hátíðarsvæði, sá þriðji sinnti óveðursútkalli og fjórði hópurinn hefur staðið í ströngu síðustu daga við að tengja flugeldasýninguna. Núna hjálpast meðlimir að við að klára síðustu tengingar flugeldasýningarinnar áður en hópurinn heldur aftur út úr húsi við gæslu á hátíðarsvæði. 
Við minnum auðvitað á flugeldasýninguna kl:23:00 í kvöld niðri á bryggju. #sandgerdisdagar
Picture
0 Comments
<<Previous

    sigurvon

    Björgunarsveit síðan 1928

    fréttasafn

    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    June 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    May 2013
    October 2012
    January 2012
    December 2011
    October 2011
    July 2011
    May 2011
    February 2011
    December 2010
    May 2010
    March 2010
    February 2010
    January 2010
    December 2009
    November 2009
    October 2009
    September 2009
    June 2009
    May 2009
    April 2009
    March 2009
    February 2009

    flokkar

    All
    Fluglína
    Fluglína
    Leit
    Leitarhundur
    Sjóbjörgun
    Sjóbjörgun
    Snjóflóðaleit

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.