Þrír menn lentu í flóðinu og komust tveir þeirra út að sjálfsdáðum. Því miður lést sá þriðji sem leitað var að og vottum við fjölskyldu hans og aðstandendum innilegrar samúðar.
Leitarhundurinn okkar, Orka, tók þátt í snjóflóðaútkalli í fyrsta sinn í gær. Orka er búin að vera á útkallslista hjá Sigurvon frá árinu 2011 og hefur tekið þátt í stærri og minni leitaraðgerðum síðan þá, en þetta var í fyrsta sinn sem hún hefur verið kölluð út vegna snjóflóðs.
Þrír menn lentu í flóðinu og komust tveir þeirra út að sjálfsdáðum. Því miður lést sá þriðji sem leitað var að og vottum við fjölskyldu hans og aðstandendum innilegrar samúðar.
0 Comments
Frábær mæting okkar fólks!
Björgunarsveitin Sigurvon telst seint til stærri björgunarsveita landsins. En við höfum sýnt það margsýnis að margur sé knár, þó hann sé smár. Enn og aftur sannaðist það í síðasta útkalli (leitin að Birnu) þar sem 37,8% skráðra meðlima í sveitinni mættu í útkallið. Tveir leitarhópar voru í aðgerðinni á vegum Sigurvonar með 6 félögum hvor. Sigurvon átti 3 aðila í svæðisstjórn yfir það heila og tvo í hússtjórn. Í það heila voru það því 17 manns frá okkar sveit sem tóku þátt í leitinni, sem verður að þykja ansi gott fyrir sveit sem telur ekki nema 45 manns á skrá. Einstaklingar sem leitað er að eru oft lengi í hugum björgunarsveitarfólksins enda geta sum útköll tekið alveg gríðarlega á andlega. Sigurvon leitaði eftir aðstoð í sálrænum stuðning frá fagaðila og hefur öllum meðlimum verið boðið að hitta fagaðila eftir þetta erfiða útkall. Við eru þakklát fyrir allan þann stuðning sem við höfum fundið fyrir frá almenningi og fyrirtækjum.
Björgunarsveitin Sigurvon vottar fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur okkar dýpstu samúð. Ég er starfsmaður Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Mig langar að þakka fyrirtækinu mínu fyrir þann skilning að með einu skilaboði þarf ég að vera farinn. Ég er einnig björgunarsveitarmaður Brimrúnar af svæði 13 og Sigurvonar af svæði 2. Föstudaginn síðasta var ég kallaður suður af lögreglu og var ég kominn kl. 04:00 laugardagsmorgun. Leit byrjaði kl. 09:00. Falleg 20 ára gömul stúlka hafði ekki skilað sér heim í viku. Rúmlega 600 björgunarsveitarmenn af öllu landinu tóku þátt. Þessi aðgerð varð sú viðfangsmesta sem Landsbjörg hefur staðið fyrir. Notast var við tvær þyrlur, tvær flugvélar, dróna, hunda, bíla og fjórhjól. Eftir erfiða tveggja daga leit í skítugu hrauninu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkur tókst okkur það sem að við komum fyrir. Við fundum Birnu. Öll svæði urðu send heim nema 1-3. Ég þurfti að halda áfram leit, í kolsvarta myrkri. Ég kom heim seint um kvöldið, og það fyrsta sem beið mín var heitt faðmlag frá mömmu. Ég grét í fanginu á henni. Ég grét yfir þeirri staðreynd að ég var sendur á það svæði þar sem vondur maður losaði sig endanlega við Birnu, í von um vísbendingar hvar og hvort möguleg morðvopn hafi verið til staðar. Þetta tók á andlega sem líkamlega - þó meira andlega. Birna sýndi okkur það, að þegar þjóðin verður fyrir áfalli, verðum við að standa saman. Við erum fjölskylda. Birna, þú áttir þetta ekki skilið. Þú áttir það ekki skilið að vera rænd framtíðinni. Þú áttir ekki skilið að fá aldrei að sjá foreldra þína aftur. Fyrirgefðu. Mig langar hér með til þess að votta fjölskyldu þinni og vinum mína dýpstu samúð. Í von um bjartari daga. - Viktor, björgunarsveitarmaður. Eins og fram kom á blaðamannafundi rétt í þessu er Birna að öllum líkindum fundin.
Því miður fannst hún ekki á lífi. Við vottum aðstandendum hennar innilegrar samúðar. Magnaður hópur var við leit í gær frá björgunarsveitum allsstaðar af landinu. Blautt var í veðri og reyndi mikið á þol og þolinmæði leitarmanna. Í dag verður farið yfir fleiri svæði og leit heldur áfram. Hér koma myndir af þeim talstöðvum sem voru í gangi á hverjum tíma fyrir sig. Tveir leitarhópar voru í aðgerðinni á vegum Sigurvonar með 4 félögum hvor. Sigurvon átti 3 aðila í svæðisstjórn yfir það heila og tvo í hússtjórn. Í það heila voru það því 13 manns frá okkar sveit sem tóku þátt í leitinni, sem verður að þykja ansi gott fyrir sveit sem telur ekki nema 45 manns á skrá. 29% skráðra sveitarmeðlima mætti í útkallið. Þetta er það sem við köllum samstöðu í lagi. Slysavarnarfélagið Landsbjörg er ótrúlega magnað batterí. Takk allir!
4 manna hópur frá Sigurvon er nú við leit að Birnu Brjánsdóttur. Hópurinn var mættur í stjórnstöð í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan 9:00 í morgun og verður við störf eitthvað fram eftir degi. Leitin er í stærra lagi og koma saman fjölda margar björgunarsveitir allsstaðar af landinu. Við óskum hópunum öllum góðs gengis í dag og treystum því að allir vinni saman af fagmennsku og fórnfýsi eins og gert hefur verið í gegnum tíðina. Leitin að Birnu Brjánsdóttur hefur ekki farið framhjá neinum.
Leitin er orðin asni stór og umfangsmikil og þrátt fyrir að hún sé ekki á okkar svæði þá eru nokkrir fulltrúar úr svæðisstjórn á svæði 2 sem hafa unnið að aðgerðinni. Sigurvon á þar einn aðgerðarstjórnanda og höfum við haft góðan hóp tilbúinn til að taka þátt í leitinni ef á þarf að halda. Við vonumst að sjálfsögðu til að hún komist í leitirnar sem allra fyrst, heil á húfi. Í kvöld tóku um 30 björgunarsveitarmenn af suðurnesjum þátt í útkalli vegna neyðarblys sem sást á lofti fyrr í kvöld, en í hópnum voru 12 meðlimir frá Björgunarsveitinni Sigurvon.
Flest okkar þekkja söguna um smalastrákinn sem hrópaði úlfur úlfur og enginn tók mark á honum. En sagan minnir okkur á að það getur verið ansi dýrt spaug að skjóta upp neyðarblysi þegar ekki er hætta á ferð. Neyðarblys eru gríðarlega mikilvæg björgunartól en ef þau eru misnotuð þá geta þau hratt breyst í smaladrenginn sem enginn tekur mark á. |
sigurvonBjörgunarsveit síðan 1928 fréttasafn
January 2018
flokkar
All
|