Flugeldasala Sigurvonar
Kaupið fLugeldana heima
Fréttabréf björgunarsveitarinnar Sigurvonar 2011 .
Kæru Sandgerðingar.
Nú fer senn að líða að áramótum og þar með fara flugeldarnir að rjúka út af sölustöðum og þeir sprengdir við hvert götuhorn í bænum.
Undanfarin ár hefur björgunarsveitin Sigurvon selt flugelda í björgunarstöðinni og nú verður engin breyting á. Við munum vera með opið sem hér segir:
Miðvikudagurinn 28.des 20:00 – 22:00
Fimmtudaginn 29.des 18:00 – 22:00
Föstudaginn 30.des 10:00 – 22:00
Gamlársdag 31.des 10:00 - 16:00
Stuðningur ykkar við okkur síðust árin hafa verið með eindæmum frábær og vonumst við eftir því að þið munið eftir okkur nú um áramótin og kaupið flugeldana af ykkar björgunarsveit.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári minnum við ykkur á að fara varlega og ganga hægt um gleðinnar dyr
Jólakveðja með þökk um veittan stuðning
Björgunarsveitin Sigurvon