Skip fast á sandrifi í Sandgerðishöfn
Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein var kallað út kl.02.40 vegna flutningaskipsins Axel sem tók niður á sandrifi í höfninni í Sandgerði.
Fór Hannes Þ. út ásamt björgunarbátnum Þorsteini frá Sigurvon í Sandgerði til aðstoðar og var einnig búið að hafa samband við skipstjórann á dragnótarbátnum Erni KE 14 og ræsti hann út sína áhöfn til að aðstoða við að koma Axel af strandstað.
Björgunarbáturinn Þorsteinn var fyrstur á staðin og var þá stefnan á Axel í VNV og þurfti að snúa honum í norður til að ná honum í rennu til að sigla út. Dragnótarbáturinn Örn kom fljótlega á staðinn og byrjaði áhöfnin strax vinnu við að rétta stefnu á Axel svo hægt væri að sigla út, fljótlega náði skipstjórinn á Erni að rétta Axel af og kom Hannes Þ. Hafstein og var reyn að freysta þessa að Hannes myndi ýta á hlið Axels á með Örn myndi toga að framan. Eftir eins og hálftíma aðgerð byrjaði Axel loks að hreyfast og losnaði hann af sandrifinu og og náði að sigla úr höfninni í Sandgerði.
Mun Axel sigla til hafnar í Helguvík þar sem botn skipsins verður skoðaður.