Þyrlur LHG mikið yfir Sandgerði
Eru á æfingu með Hannesi Þ. Hafstein
Íbúar Sandgerðis hafa orðið mikið varir við að þyrlur Landhelgisgæslu Íslands séu á flugi um og yfir bænum í vetur. Er ástæðan fyrir því að LHG og björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein eru mikið að æfa saman og stilla sína strengi þannig að ef einhver vá kemur þá eru viðbragsaaðilarnir viðbúnir og þekkja vel til hvors annars.Þyrlur LHG hafa tvisvar lent á túni milli frystihúsana K&G og Ný-Fisks á árinu 2009, gerðist það síðast 15 desember síðastliðinn þegar þyrla TF-LÍF lenti á þessum bletti
(sjá umfjöllun á www.245.is)
Æfingar af þessu tagi eru nauðsynlegar báðum aðilum og munu halda áfram í vetur og má því búast við að þyrlur frá LHG munu lenda þarna oftar í framtíðinni þegar að æfingar eru haldnar á þessu svæði.
Þess má geta að það er fyrirhuguð æfing í dag með björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein og þyrlu frá LHG og fer hún fram vestur af Sandgerði eins og venja er.
Með von um að þetta valdi íbúum sandgerðis ekki ama.
Björguanrsveitin Sigurvon og áhafnir Hannes Þ. Hafstein