Útkall F3>grænn Leit að björgunarbát norður af Sandgerði
Enginn hætta á ferð.
Rétt fyrir klukkan 10 í morgun var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út til leitar að gúmmíbjörgunarbát norðu af Sandgerði sem losnað hafði af togskipinu Hring SH 153 frá Grundarfirði.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenar báturinn losnaði af Hring, en neyðarsendir úr björgunarbátnum fór að senda frá sér neyðarmerki eftir að báturinn sprakk upp í sjónum og hófu starfsmennlandhelgisgæslu Íslands strax eftirgrennslu að bátnum og var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út í kjölfarið á útkall F3>grænum forgangi þar sem að enginn hætta var á ferð.