Tilbúin í hvað sem er !
Hvalreki í Sandgerði
Í morgun uppgötvaðist hvalreki við Norðurkot í Sandgerði og að sögn Reynis Sveinssonar forstöðumanns Fræðasetursins er hér um hnúfubak að ræða, karldýr um 10-11 metra langt.
Beiðni barst svo okkur í Sigurvon um að fjarlæga hræið úr fjörunni þvi mikið æðavarp er í Norðurkoti og getur skapast hætta á því að lýsismengun frá dýrinu geti skaðað friðað fuglalífið við Norðurkot.
Fórum við út að dýrinu á fjörunni um kl 21:00 og komum fyrir dráttartaug og svo verður freistast við að draga dýrið á flot um kl 04:00 í nótt og koma því í burtu frá æðarvarpinu.
Hér að neðan er myndband frá leiðangrinum okkar: