Í tilefni dagsins munu meðlimir Björgunarsveitinar Sigurvon skjóta upp hvítu svifblysi klukkan 21:00 í kvöld. En klukkan 21.00 verður hvítu svifblysi skotið upp á sama tíma um allt land.
Í dag 29. janúar verða 90 ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs sem síðar var sameinað undir nafnið Slysavarnarfélagið Landsbjörg árið 1999 eins og við þekkjum það í dag. Síðar sama ár eða 28 Júní 1928 var Slysavarnardeildin Sigurvon stofnuð og er hún fyrsta slysavarnardeildin sem stofnuð var innan Slysavarnafélags Íslands. Slysavarnadeildina Sigurvon þekkjum við í dag sem Björgunarsveitina Sigurvon sem starfað hefur við leit og björgun bæði til sjó og lands allt frá stofnun.
Í tilefni dagsins munu meðlimir Björgunarsveitinar Sigurvon skjóta upp hvítu svifblysi klukkan 21:00 í kvöld. En klukkan 21.00 verður hvítu svifblysi skotið upp á sama tíma um allt land.
0 Comments
Eins og flestir vita er björgunarsveitin byggð á hópi sjálfboðaliða sem eru stöðugt á vaktinni allan ársins hring. En til þess að geta sinnt útköllum þurfum við að geta staðið straum af tækja og búnaðarkaupum, svosem farartækjum, fjarskiptatækjum og öryggisbúnaði sem dæmi. Okkar strærsta fjáröflun yfir árið er flugeldasalan, en þar leggja meðlimir sveitarinnar nótt við dag til þess að setja hana upp og svo manna hana dag og nótt yfir opnunardagana.
Sigurvon er lítil sveit og það munar um hvern einstakling sem kemur til okkar að versla flugelda. Verslum í heimabyggð og styðjum við sveitina okkar. Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum fyrir áramótin! Meðlimir Sigurvon létu ekki sitt eftir liggja í leitinni að kvöldi jóladags, en 12 meðlimir sveitarinnar tóku þátt í leitinni á jóladag. Björgunarsveitin Sigurvon á marga velunnara sem styrkt hafa starf sveitarinnar í gegnum árin og eigum við þeim mikið að þakka. En okkur langar að þessu sinni að koma á framfæri þökkum til fjölskyldna björgunarsveitarmanna fyrir ómetanlegan stuðning.
Kæru bæjarbúar
Björgunarsveitin Sigurvon fòr af stađ međ sölu á neyđarkallinum ì gær en ekki náðist að klára allar göturnar og munum við því halda áfram ì kvöld. Bæjarbúar hafa tekið gríðarlega vel á móti meðlimum sveitarinnar og langar okkur að koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa. Í kvöld fór fram námskeiðið Fjarskipti 1 hér í Austurgarði.
Góð mæting var á námskeiðið eða 14 nemendur! Þar af 6 frá Sigurvon og 8 frá Þorbirni í Grindavík. Fjarskipti 1 er eitt af grunnnámskeiðum Björgunarskólans sem falla undir flokkinn Björgunarmaður 1. Þar læra nemendur grunninn í talstöðvasamskiptum með VHF og Tetra ásamt því að þau kynnast lauslega öðrum fjarskiptalausnum. Leiðbeinandi var Dóra úr Sigurvon. Menntun björgunarmanna skiptir miklu máli svo þeir séu sem best undirbúnir þegar kemur að því að fara í útköll. Í kvöld fór fram aðalfundur Björgunarsveitarinnar Sigurvon. Töluverðar breytingar urðu á stjórn og skipar hún eftirtalin:
Alma Guðnadóttir formaður Bragi Snær Ragnarsson varaformaður Fannar Vilhjálmsson gjaldkeri Hulda Lind Stefánsdóttir ritari Ragnar Sæbjörn Ingason meðstjórnandi Jakob Gunnarsson varamaður Sverrir Kristinsson varamaður Jónína Hansen, Halldór Jón Grétarssom og Sigurbjörn Grétarsson hættu í stjórn og þökkum við þeim kærlega fyrir síðsta árið. Stjórn Sigurvonar boðar til aðalfundar Björgunarsveitarinnar Sigurvon þriðjudaginn 17. október næstkomandi í húsi sveitarinnar Austurgarði 4-6.
Fundur hefst kl.20:00 Dagskrá: - Venjuleg aðalfundarstörf. - Skýrsla stjórnar. - Önnur mál. -Framtíð sveitarinnar. VIð hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á fundinn. Stjórn Sigurvon Það hefur verið nóg að gera hjá meðlimum Sigurvon í dag. Fyrsti hópur mætti snemma í morgun til að halda utan um dorgveiðikeppnina, annar tók að sèr gæslu á hátíðarsvæði, sá þriðji sinnti óveðursútkalli og fjórði hópurinn hefur staðið í ströngu síðustu daga við að tengja flugeldasýninguna. Núna hjálpast meðlimir að við að klára síðustu tengingar flugeldasýningarinnar áður en hópurinn heldur aftur út úr húsi við gæslu á hátíðarsvæði.
Við minnum auðvitað á flugeldasýninguna kl:23:00 í kvöld niðri á bryggju. #sandgerdisdagar |
sigurvonBjörgunarsveit síðan 1928 fréttasafn
January 2018
flokkar
All
|