Stormur í aðsigi.
Ofsaveður
Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna ofsaveðurs sem gegur yfir suðvestur landið seint í nótt og með morgninum.
Af því tilefni vill björgunarsveitin Sigurvon brýna fyrir íbúum Sandgerðis að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíkum veðurofsa.
Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt að festa þá tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra. Þetta eru hlutir eins og garðhúsgögn, grill, hitarar, trampólín og litlir kofar. Huga þarf líka að hjólhýsum, fellihýsum, tjaldvögnum og dráttarkerrum og setja þau í skjól við ríkjandi vindátt ef kostur er.
Húsbyggjendur ættu að sýna sérstaka varkárni og ganga frá lausum munum og fergja niður það sem hægt er.
Verið viss um að gluggar og dyr séu vel lokaðar. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og byrgja gluggan. ´
Eigendur báta í höfninni í Sandgerði eru beðnir um að binda báta sína vel niður
Björgunarsveitin Sigurvon verður í viðbragðsstöðu á meðan veðrið gengur yfir. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda vinsamlegast hringja í Neyðarlínuna - 112 eftir hjálp.