Slasaður sjómaður
Sóttum slasaðan sjómann
Að kvöldi þann 23.mai fékk björgunarsveitin beiðni frá Frera RE-73 um að aðstoða þá við að koma sjómanni í land sem hafði dottið um borð og þarf að komast undir læknishendur. Áætlaður timi fyrir utan Sandgerði væri kl 09:30 að morgni 24.mai.
Haft var samband við brunavarnir Suðurnesja og þeim gert viðvart og að senda okkur sjúkrabíl til að taka á móti honum.
Farið var út á Þorsteini í blíðskaparveðri og gekk vel að koma manninum um borð og í land.