Bátamaraþon hjá Unglingadeildinni Von
Félagar í Von, unglingadeild Björgunarsveitarinnar Sigurvonar, eru með bátamaraþon í gangi yfir helgina sem hófst klukkan 07°° að morgni fimmtudags. Báturinn er staddur við flotbryggjuna fyrir aftan björgunarstöðina og ætla þau að vera í honum í að minnsta kosti 81 tíma. Unglingadeildin hefur í gegnum tíðina haldið bátamaraþon sem er ein af stærstu fjáröflunum sem deildin heldur.
Í ár eru aðeins 8 krakkar sem taka þátt og mun hver og einn vera í að minnsta kosti 20 tíma og eru alltaf 2-3 í bátnum í einu. Meðlimir í björgunarsveit Sigurvonar vakta þau á meðan maraþonið stendur yfir.
Allur ágóði af fjáröfluninni mun svo verða notaður í kostnað við þátttöku á landsmóti sem haldið verður á Hnífsdal í júlí og fyrir fatnaði, búnaði, námskeiðum og fleiru sem við kemur starfi unglingadeildarinnar.
Unglingadeildin Von óskar öllum gleðilegs sumars og þakkar kærlega fyrir stuðninginn.
Ef fólk vill styrkja deildina er hægt að leggja inn á reikning deildarinnar:
1190-26-8240 kt 630493-2859
- 81 kr. á klst. = 6561 kr
- 181 kr. á klst. = 14661 kr
- 281 kr. á klst. = 22761 kr
- 381 kr. á klst. = 30861 kr
- 481 kr. á klst. = 30861 kr
Frjálst framlag _________
Myndir og texti: Smári/245.is