Vélarvana bátur tekin í tog.
Björgunarsveitin Sigurvon var kölluð út í dag til aðstoðar línu og netabátnum Kidda Lár en hann var vélarvana um 3 sml VSV af Sandgerði. Leiðinda veður var í dag og töluverður sjór. Björgunarbáturinn Þorsteinn var sendur út og tók hann Kidda Lár í tog inn til Sandgerðis, tók ferðin á annan tíma og gekk mjög vel.
Kiddi Lár er um 15 tonna Seigur 1250 yfirbyggður og er í eigu Útgerðarfélags Sandgerðis ehf.