Tilkynning.
Tilkynning vegna slyss á landsæfingu björgunarsveita.
Vegna slyss sem varð á landsæfingu björgunarsveita vill björgunarsveitin Sigurvon koma eftirfarandi á framfæri:
Slys það sem varð á landsæfingu björgunarsveita sem haldin var á Suðurnesjum og gerðist í lokaverkefni æfingarinnar varð með þeim hætti að verið var að leggja eld að þar til gerðum brunastað fyrir slökkvilið þegar að einhverskonar bensíngufa hafði myndast í því rými sem eldurinn var lagður að og varð þá mjög lítil sprenging í gufunni og fór hún framan í einn meðlim sveitarinnar og hlaut hann við það fyrsta stigs brunasár í andliti. Ekkert athugarvert kom í ljós eftirá hvernig þetta var gert og hafði sami aðili þegar kveikt tvisvar sinnum áður í á æfingunni án vandræða.
Hann er á batavegi.
Mbk
Stjórn Sigurvonar.